Forseti Íslands mætti á úrslitaleik ÍA og Álftaness


Keppnistímabilinu hjá körfuknattleiksfélagi ÍA er lokið í 2. deild.

ÍA lék til úrslita gegn Álftanesi um sæti í 1. deild í gær. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu á Álftanesi. Að viðstöddu fjölmenni – og var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, á meðal áhorfenda.

Guðni Th. Jóhannesson mætti á leikinn í gær. Mynd/karfan.is

Heimamenn úr liði Álftaness náðu yfirhöndinin í síðari hálfleik – en ÍA var með nauma forystu í hálfleik.

Lokatölur 123-100.

Leikurinn var í beinni útsendingu á ÍATV. Og má sjá útsendinguna hér fyrir neðan.


Smelltu hér til að sjá myndasyrpu frá leiknum frá karfan.is