„Forgangsverkefni að koma Fjöliðjunni í gang sem allra fyrst“


Mikið tjón varð í gærkvöld í húsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut 10 í gærkvöld en eldur kom upp í húsinu.

„Í þessu húsnæði fer fram mikilvæg starfsemi sem við verðum að koma í gang sem allra fyrst. Viðræður er þegar hafnar við nokkra aðila hér í bænum til þess að finna hentugt bráðabirgða húsnæði en hvað varðar núverandi húsnæði verðum við að bíða og sjá eftir að úttekt hefur farið fram“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness. 

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út um kl. 21:30. Mikill reykur í húsnæðinu þegar slökkviliðið kom á vettvang og logaði eldur í vinnusal húsnæðisins.

Húsið er verulega skemmt og óstarfhæft.

Forgangsverkefni stjórnenda Akraneskaupstaðar er að koma starfseminni í gang sem allra fyrst og er verið að leita lausna í þeim málum.