Það er mikill meðbyr með ÍA í fótboltanum þessa dagana. Gengi liða ÍA er gott og stuðningsmenn láta sig ekki vanta á leikina.
Eins og sjá má á þessari loftmynd sem Hjalti Sig tók á meðan leikur ÍA og Stjörnunnar fór fram í gær.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/05/61752461_387412801862875_1454632842502864896_n-1132x670.jpg)
Þar má sjá hreyfimyndir úr lofti þar sem að Steinar Þorsteinsson skorar annað mark liðsins.
Rétt tæplega 1.800 áhorfendur voru á leiknum í gær og er það met á þessari leiktíð.
Áhorfendamet var sett í september árið 1996. Þá mætti 5.801 áhorfandi á Akranesvöll þar sem KR nægði jafntefli til að verða meistari en ÍA vann sannfærandi sigur, 4:1 – og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2019/05/60632525_483633332443856_7053368573946757120_n.gif)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2019/05/59765748_655013011614917_8413085164648792064_n.gif)
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2019/05/61216347_394309667837960_3042370608454172672_n.gif)