Langisandur er eina Bláfánaströnd landsins


Bláfánanum var flaggað í sjöunda skiptið á Langasandi þann 27. maí síðastliðinn.

Bláfáninn er veittur þeim baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem lúta að eftirfarandi þáttum; umhverfisfræðsla og upplýsingagjöf, vatnsgæði, umhverfisstjórnun, öryggi og þjónusta. 

Langisandur er eina Bláfánaströnd landsins árið 2019.

Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku (t.d. hvalaskoðunarbátum) fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum.

Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er tákn um góða frammistöðu í umhverfismálum og bætir ímynd og ásýnd rekstraraðila þar sem hann blaktir við hún.

Bláfáninn er veittur þeim baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem lúta að eftirfarandi þáttum; umhverfisfræðsla og upplýsingagjöf, vatnsgæði, umhverfisstjórnun, öryggi og þjónusta. 

Landvernd er umsjónaraðili Bláfánans á Íslandi, hægt er að finna frekari upplýsingar um Bláfánann á vef Landverndar.

Bláfánanum er flaggað víða um heim, m.a. á Spáni, Suður-Kóreu og Marokkó og á árinu 2019 er fánanum flaggað á 4.560 stöðum í 45 löndum, þar á meðal á Akranesi.

Langisandur er eina Bláfánaströnd landsins árið 2019.

Akraneskaupstaður lítur á Bláfánann sem tækifæri til að sinna ábyrgðarhlutverki sínu í að stuðla að aukinni umhverfisfræðslu til verndar hafsins. Akraneskaupstaður vill hvetja alla íbúa til að taka þátt í þeim viðburðum og verkefnum sem boðið verður upp á á Langasandi í sumar og njóta strandarinnar sem við erum svo heppin að hafa hér í bæjarfélaginu okkar.

Alþjóðleg vefsíða Bláfánans er hér
Nýjasta fréttabréf Bláfanans má lesa hér.