ÍA með prúðasta liðið á AMÍ


Prúðasta liðið, Aldursflokkameistari og mjög góðar bætingar um helgina.

Skagamenn létu að sér kveða í sundíþróttinni um liðna helgi á Aldursflokkameistaramóti Íslands sem fram fór í Reykjanesbæ.

Mótið er bæði keppni á milli liða þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir.

Alls tóku 11 sundlið þátt í mótinu og voru keppendur 293.

Sundfélags Akraness var með 19 keppendur. ÍA endaði í 5. sæti eftir hörkukeppni gegn liði Óðins frá Akureyri. ÍA náði 5. sætinu í lokakeppnisgreininni sem skilaði ÍA einu stigi fyrir ofan Óðinn.

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir varð aldursflokkameistari í 13-14 ára flokki i 100m baksund á tímanum 1.10,01 sem er góð bæting og náði hún með þessu sundi inn í framtíðarhóp SSÍ.

Guðbjörg Bjartey var í öðru sæti í 100m bringusundi, 200m baksundi og 100m flugsundi með góðum bætingum.

Kristján Magnússon vann silfur í 100m baksundi og brons í 800m skriðsundi í flokki 13-14 ára með glæsilegum bætingum.

Ragnheiður Karen Ólafsdóttir stóð sig vel og vann til bronsverðlauna í 100m bringusundi í flokki 15-17 ára.

Sundfélag Akraness vann titilinn prúðasta liðið á mótinu og erum við afar stolt af krökkunum fyrir það.

Á mótinu eru veitt verðlaun fyrir efstu sex sætin.

Eftirtaldir sundmenn ÍA fengu verðlaun:

Í flokki 15-17 ára:

Enrique Snær Llorens Sigurðsson , 4. sæti í 200 flugsund, 5. sæti i 100 flugsund, 6. sæti i 400 fjórsund.

Ragnheiður Karen Ólafsdóttir 3. sæti i 100 bringusund, 6. sæti i 200 bringusund.

Í flokki 13-14 ára:

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir aldursflokkameistari í 100m baksundi

1. sæti í 100m flugsund, 200 baksund, 100m bringusund
2. sæti i 100m skriðsund

Ingibjörg Svava Magnúsardóttir:

4. sæti i 100m flugsund, 5. sæti i 400 skriðsund og 800 skriðsund. 6. sæti i 100 skriðsund

Kristján Magnússon 2. sæti i 100 baksund, 3. sæti i 800m skriðsund, 4. sæti i 100m skriðsund, 200m skriðsund og 400m skriðsund., 5. sæti i 100m flugsund.

Guðbjarni Sigþórsson 5. sæti i 100m baksund.

Einar Margeir Ágústsson 5. sæti i 100m bringusund.

Liðið var með 86 bætingar og allir að standa sig mjög vel, en á mótinu kepptu þau :

Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Lara Jakobína Ringsted, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, Erna þórarinsdóttir, Rafael Andri Williamsson, Alex Benjamin Bjarnasson, Kristján Magnusson, Einar Margeir Ágústsson, Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir, Ingibjörg Svava Magnusardóittir, Guðbjarni Sigþórsson, Karen Karadóttir, Aldís Thea Danielsdóttir Glad, Helga Rós Ingimarsdóttir, Freyja Hrönn Jónsdótir, Auður Maria Larusdóttir Mateusz Kuptel, Vikingur Geirdal, Iris Arna Ingvarsdóttir

Lið SH í Hafnarfirði bar sigur úr býtum en í 2. sæti var lið ÍRB frá Reykjanesbæ, í 3. sæti var lið Sunddeildar Breiðabliks úr Kópavogi, í 4. sæti var lið ÍBR sem eru sameinuð þrjú sundlið úr Reykjavík.