ÍA fagnaði sigri í 3. flokki kvenna á Alþjóðlega knattspyrnumótinu REY CUP sem lauk í dag. ÍA lék gegn norska liðinu Gjelleråsen IF í úrslitaleiknum sem fram fór á sjálfum Þjóðarleikvangi Íslendinga, Laugardalsvellinum.
Lilja Björg Ólafsdóttir skoraði fyrir ÍA af 40 metra færi og jafnaði metin eftir að norska liðið hafði skorað fyrsta mark leiksins.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/07/67676606_483778719077012_3623247690944479232_n-1132x670.jpg)
Staðan var jöfn að loknum venjulegum leiktíma og úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Skagakonurnar skoruðu úr öllum þremur vítaspyrnum sínum en norska liðið klikkaði á einni.
Þetta var fyrsti tapleikur norska liðsins í mótinu en liðið hafði fyrir úrslitaleikinn sigrað örugglega í öllum sínum leikjum.