Myndasyrpa frá knattspyrnuskóla KFÍA og IFK Norrköping


Góð mæting var í Knattspyrnuskóla KFÍA og sænska liðsins IFK Norrköping. Samstarf þessara félaga hefur verið aukið með markvissum hætti á undanförnum misserum og var skólinn hluti af því samstarfi.

Tveir þjálfarar frá IFK Norrköping, þjálfarar U-16 og U-19 ára liðsins, sem eru einnig að vinna fyrir A-liðið hjá þeim, komu til landsins og stjórnuðu Knattspyrnuskólanum þar sem 40 krakkar tóku þátt, á aldrinum 10-16 ára, bæði strákar og stelpur.

Sænsku þjálfararnir voru einnig mjög virkir í að horfa á æfingar hjá öðrum flokkum félagsins og stjórnuðu æfingum bæði hjá 2. flokk og 3. flokk á meðan þeir dvöldu hér.

Þeir voru síðan með kynningu fyrir þjálfara KFÍA þar sem þeir sögðu frá sínum störfum og okkar þjálfarar fóru einnig yfir sín störf hjá KFÍA.

Þessi skóli tókst gífurlega vel og sænsku þjálfararnir voru mjög ánægðir með þetta verkefni. Það var margt sem þeir hrifust af í fari krakkanna út frá hæfileikum, metnaði, áhuga og einnig hversu kraftmiklir þeir voru.

Í haust munu síðan fjórir leikmenn og þjálfari frá KFÍA heimsækja IFK Norrköping og dvelja þar í eina viku við æfingar.

Loks má bæta því við að aðilar frá sænska sendiráðinu komu í heimsókn á föstudaginn og funduðu með fulltrúum KFÍA, en þeir fréttu af þessu samstarfi og fannst það mjög áhugavert í alla staði.

Skagafréttir mættu í skólann þegar yngri hópurinn var á kraftmikli æfingu í skólanum s.l. fimmtudagsmorgun. Hér er myndasyrpa frá þeirri heimsókn.