Andleg og líkamleg heilsa í öndvegi í Heilsueflandi samfélagi á Akranesi


Akraneskaupstaður hefur skuldbundið sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags á Akranesi í samráði við Embætti landlæknis. Samningur þess efnis var undirritaður 1. okt s.l.

Alls eru 29 sveitarfélög á landinu sem vinna að því markmiðið að vera Heilsueflandi samfélag.

Starfshópur um innleiðingu Heilsueflandi samfélags á Akranesi hefur nú þegar tekið til starfa.

Verkefnastjóri hópsins Hildur Karen Aðalsteinsdóttir frá Íþróttabandalagi Akraness. Í starfshópnum sitja að auki fulltrúar þeirra hópa í samfélaginu sem hafa mikinn snertiflöt við þjónustu sveitarfélagsins s.s. fulltrúi aldraðra og fulltrúi frístundastarfs.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélagið á Akranesi í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa og þar með að sveitarfélagið verði sjálfbærara, skilvirkara og eftirsóknarverðara til búsetu.

Lögð er áhersla á að bæta lífsgæði íbúanna þar sem andleg og líkamleg heilsa er í öndvegi og stuðlar þannig að ánægðari, hamingjusamari og heilsuhraustari íbúum.

Það voru þau Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri og Alma D. Möller, landlæknir, sem skrifuðu undir samninginn um innleiðingu Heilsueflandi samfélags á Akranesi.