Fjölmenni mætti á „Morgunstund“ í Brekkubæjarskóla

Í Brekkubæjarskóla á Akranesi hafa nemendur látið ljós sitt skína á Morgunstundum sem haldnar eru með reglulegu millibili.

Á þessum Morgunstundum koma nemendur og starfsfólk Brekkubæjarskóla saman í íþróttahúsinu við Vesturgötu.

Mikið er lagt í verkefnið og margar hendur sem koma að þeim undirbúningi.

Dagskráin á Morgunstundinni er fjölbreytt og hæfileikar nemenda fá að njóta sín með ýmsum hætti.

Áhorfendastúkan í íþróttahúsinu voru nánast full. En þar komast fyrir um 800-1000 áhorfendur.

Bleiki liturinn var áberandi hjá gestum Morgunstundarinnar í tilefni af bleikum október.

Hér fyrir neðan eru myndir frá Morgunstundinni sem birtar voru á vef Brekkubæjarskóla.