Norðurlandamótinu í klifri hefur verið frestað vegna Covid-19 veirunnar.
Tveir keppendur úr röðum Klifurfélags ÍA, Brimrún Eir Óðinsdóttir og Sylvía Þórðardóttir, eru í íslenska landsliðshópnum sem átti að keppa á þessu Norðurlandamóti.
Þetta eru leiðinlegar fréttir fyrir alla en unnið er að því að fá nýja dagsetningu fyrir mótið.