Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa listað upp ýmsar aðgerðir sem farið verður í á næstunni vegna þeirra stöðu sem komin er upp vegna Covid-19.
Ákvörðun stjórnvalda um samkomubann frá 17. mars s.l. hefur skert starfssemi og þjónustu stofnanna á Akranesi – og var farið yfir mögulegar aðgerðir af hálfu Akraneskaupstaðar á síðasta bæjarráðsfundi.
Þar ber hæst að finna á leiðir til að leiðrétta gjöld vegna þjónustu í leik – grunnskóla og frístundar.
Frestun gjalddaga fasteignagjalda fyrirtækja og einstaklinga sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi er á dagskrá og unnið er að útfærslu á þeim málaflokki.
Kanna á að flýta viðhaldsframkvæmdum og stærri fjárfestingaverkefna.
Þjónustukort í íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar verða framlengd á meðan samkomubanninum stendur.
Aðgerðalisti Akraneskaupstaðar er hér fyrir neðan.
A. Bæjarráð samþykkir að Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla og frístundar fellur niður eða skerðist vegna samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar. Í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við.
Ofangreint nær til þjónustu gjalda leik- og grunnskóla og starfsemi frístundar í Þorpinu.
Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka apríl næstkomandi.
Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og verður fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15. apríl næstkomandi.
B. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að útfæra tillögur varðandi mögulega frestun gjalddaga fasteignagjalda fyrirtækja og einstaklinga sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna áhrifa COVID-19 veirunnar. Tillögurnar taki mið af ákvörðun ríkisvaldsins um frestun gjalddaga staðgreiðslu og tryggingargjalds hjá lögaðilum.
C. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að útfæra tillögu varðandi fasteignaskatta í flokki A (íbúðarhúsnæði) og C (atvinnuhúsnæði) vegna komandi fjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2021 í samræmi við útfærslur vegna fjárhagsáætlunar yfirstandandi árs. Það felur í sér útfærslu í samræmi við ákvæði lífskjarasamningsins og bindur hækkanir við áætlaðar verðlagsbreytingar en ekki hækkun fasteignamats. Sama gildir um áætlaða hækkun gjaldskráa á milli ára sem er í samræmi við hefðbundna aðferðarfræði Akraneskaupstaðar við fjárhagsáætlunargerð.
D. Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra tillögur um mögulega flýtingu viðhaldsframkvæmda í sveitarfélaginu og stærri fjárfestingaverkefna. Útfærslan taki m.a. mið af væntanlegum tillögum ríkisvaldsins um endurgreiðslu virðisaukaskatts en slíkt hefur verið boðað og er í vinnslu. Sama gildir um stofnframlagsverkefni sem útfærð verði í samræmi við væntanlegar tillögur ríkisvaldsins á þessu sviði.
E. Bæjarráð samþykkir að gildistími þjónustukorta í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar framlengist sem nemur gildistíma samkomubanns stjórnvalda.