Óskar Hrafn á heimleið með neyðarflugi frá Spáni að kröfu dætra sinna


Óskar Hrafn Ólafsson, fyrrverandi skipstjóri á Akraborginni, er á heimleið til Íslands en eins og áður hefur komið fram hefur Óskar Hrafn verið strandaglópur á Spáni.

Covid-19 faraldurinn er í hámarki á Spáni um þessar mundir. Óskar Hrafn óttaðist um líf sitt þar sem hann glímir við öndunarörðugleika en Covid-19 veiran leggst einkum á öndunarfærin.

Í viðtali við visir.is segir Óskar Hrafn að dætur hans hafi krafist þess að fá hann heim – en viðtalið má lesa í heild sinni hér.

http://localhost:8888/skagafrettir/2020/03/24/fyrrum-skipstjori-a-akraborginni-ottast-um-lif-sitt-fastur-a-spani/