Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur sagt af sér sem varaforseti ASÍ. Skagamaðurinn tók þessa ákvörðun til að mótmæla ákvörðun meirihluta stjórnar ASÍ að samþykkja ekki tillögu um að skerða mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð tímabundið.
Í samtali við mbl.is segir Vilhjálmur að frekari uppsagnir blasi nú við eftir þessa ákvörðun ASÍ. Aðgerðin hefði átt að létta undir með fyrirtækjum í landinu og verja störf.
„Ef okkur tekst að verja 100 störf, 200 störf, 500 störf eða 1000 störf með slíkri aðgerð, tímabundinni aðgerð, þá væri fólginn mikill ávinningur í því. Að fresta tímabundið framlagi í lífeyrissjóði, sem hefur sáralítil áhrif á réttindi félagsmanna til lengri tíma litið, er skásti kosturinn,“ segir Vilhjálmur m.a. í viðtalinu sem má lesa í heild sinni hér.
Ég hef verulegar áhyggjur af stöðunni. Á mínu svæði höfum við þurft að ganga í gegnum gríðarlegar hremmingar á liðnum misserum með umtalsverðu falli starfa meðal annars í fiskvinnslunni hjá okkur. Þetta högg sem við erum að fá á okkur núna er mjög alvarlegt.“