Heilsu- og hvatningarverkefnið „Hjólað í vinnuna“ hefst þann 6. maí n.k. út um allt land. Þessi viðburður stendur að venju yfir í þrjár vikur eða til 26. maí.
„Hjólað í vinnuna“ fer nú fram í átjánda sinn og er það á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
Markmiðið er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá „Hjólað í vinnuna“.
Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má finna efni reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.
Við þær sérstöku aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinna sinni daglegu hreyfingu.
Það er mjög mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga að vel að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum. Verkefnið Hjólað í vinnuna er góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferða-máti og jafnframt eru þær frábær útivist, hreyfing og öflug líkamsrækt.
Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær. Í fyrsta lagi vinnustaðakeppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða. Og í öðru lagi kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði. Í ár hvetjum við þá sem vinna heima hjá sér að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annann virkan ferðamát sem nemur kílómetrum til og frá vinnu. Einfaldara getur það ekki verið og allir geta tekið þátt.
Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning á hjólreiðum sem heilsusamlegum samgönguvalkosti. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu.
ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitafélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk.
Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má finna efni reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.