Mikil fjölgun í sóttkví á Akranesi – nýjustu Covid-19 tölurnar frá Vesturlandi


Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu að birta nýjustu upplýsingar varðandi Covid-19 smit á Vesturlandi.

Alls hafa 42 Covid-19 smit verið greind á Vesturlandi og eru alls 43 í sóttkví á Vesturlandi. Á Akranesi eru 31 í sóttkví og hafa 13 smit verið greind. Alls 29 einstaklingar fóru í sóttkví í gær eftir að eitt smit var greint í Heiðarskóla Í Hvalfjarðarsveit.

Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan hefur ásatandið lagast mikið á Vesturlandi á undanförnum vikum.