Hreyfistöðvar í Garðalundi voru opnaðar með formlegum hætti þann 7. júlí s.l. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fékk þann heiður að opna verkefnið. Um er að ræða ellefu upplýsingaskilti með leiðbeiningum um æfingar.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/07/sh4a9186-1024x670.jpg)
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.
Hreyfistöðvarnar er hluti af verkefninu heilsueflandi samfélagi á Akranesi sem er samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness.
Sævar sagði m.a. frá því að með innleiðingu heilsueflandi samfélags á Akranesi þá hafi aukinn kraftur verið settur í uppbyggingu ýmissa innviða sem stuðla eigi að aukinni hreyfingu og heilsueflingu bæjarbúa.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/07/sh4a9221.jpg)
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA, hafði umsjón með verkefninu og kynnti hún það fyrir gestum við opnunina í Garðalundi. Fram kom í máli hennar að miklar væntingar séu bundnar við hreyfistöðvarnar og að þessi skemmtilegi æfingahringur í einni af perlum Akraness muni stuðla að aukinni hreyfingu og útivist bæjarbúa og gesta í Garðalundi.
Æfingarnar á hreyfistöðvunum henta öllum aldri en sjúkraþjálfararnir Anna Sólveig Smáradóttir og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir settu æfingarnar upp. Þær fóru einnig í gegnum allar æfingarnar með gestum opnunarathafnarinnar.
Bjarna Helgason sá um hönnun skiltanna, Steðji efh. um smíði á þeim og Topp Útlit sá um prentun á skiltin. Starfsmenn skipulags- og umhverfissviðs sáu svo um að koma skiltunum fyrir ásamt því að hanna og smíða pall með einni af hreyfistöðvunum.
Hér er búið setja inn upplýsingar á heimasíðu Akraness um Hreyfistöðvar í Garðalundi.
Þar verða æfingar sýndar og einnig eru myndbönd fyrir hverja æfingu væntanleg. Til að tengja sama hreyfistöðvarnar og heimasíðuna hefur QR-kóði sem hægt er að skanna með farsíma verið settur á upplýsingaskiltin og fæst þannig beinn aðgangur að upplýsingum um æfingarnar á heimasíðunni.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/07/sh9a1601.jpg)