Myndband: „Kjáni sem ætti ekki að vera með próf“


„Það þarf ekki að fara langt inn á þjóðveginn til að hitta fyrir heilalausa bílstjóra, við vorum rétt komin út fyrir Akranes, þegar við mættum þessum snillingi,“ skrifar Einar Jónsson á fésbókarsíðu sína þar sem hann birti um leið myndband af stórhættulegum framúrakstri á þjóðveginum við Akranes.

Eins og sjá má á myndbandinu forðaði Einar stórslysi með því að draga úr hraðanum.

„Ég steig á hemlana um leið og ég sá hann við hliðina á bílnum sem hann var að fara fram úr og var kominn niður í 40 til 50 km hraða þegar við mættum honum. Hann hefur elfaust haldið að hann hafi reiknað þetta allt rétt út!!“