Í dag var tólfti glugginn opnaður í dagatalinu „Skaginn syngur inn jólin með þér“. Þetta skemmtilega verkefnið hafi slegið í gegn og mörg þúsund manns fylgjast með á hverjum einasta degi.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/12/125542575_113205183937786_5301034852281048638_o-1132x670.jpg)
Heiðmar Eyjólfsson syngur í dag þekkt lag eftir Chris De Burgh – A Spaceman Came Travelling. Hægt er að hlusta á lagið hér fyrir neðan.
Alls er 24 tónlistaratriði á dagskrá og er einn gluggi opnaður kl. 9 á hverjum morgni fram að jólum.
Mikil leynd hvílir yfir flytjendum en atriðin voru tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu í Görðum.
Ólafur Páll Gunnarsson og Hlédís Sveinsdóttir eru kynnar í þessu verkefni. Heiðar Mar Björnsson sá um upptökur og Sigurður Ingvar Þorvaldsson sá um hljóðupptökurnar.
Hljómsveitarstjórinn er Birgir Þórisson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi en hann er einnig í Húsbandinu sem spilar undir hjá tónlistarfólkinu.
Auk hans eru Pétur Valgarð Pétursson (gítar), Sigurþór Þorgilsson (bassi) og Þorvaldur Kári Ingveldarson (trommur).
11. desember:
10. desember:
9. desember:
8. desember:
7. desember:
6. desember:
5. desember:
4. desember:
3. desember:
2. desember:
1. desember:
![This image has an empty alt attribute; its file name is stuðng2020-437x1024.jpg](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2020/04/stu%C3%B0ng2020-437x1024.jpg)