20. sæti – Mest lesnu fréttir ársins 2020 á skagafrettir.is

Það sem af er árinu 2020 hafa rúmlega 1100 fréttir verið birtar á skagafrettir.is. Árið 2020 er metár hvað varðar aðsókn og lestur en skagafrettir.is fór formlega í „loftið“ þann 10. nóvember árið 2016.

Á næstu dögum ætlum við að rifja upp 20 mest lesnu fréttir ársins 2020.  Allar greinarnar sem komust inn á topp 20 listann voru með yfir 3000 heimsóknir.

Í 20. sæti er skemmtileg frétt þar sem að fermingarbræður ákváðu að endurtaka myndatökuna sem framkvæmd var þann 18. maí árið 1980.

http://localhost:8888/skagafrettir/2020/05/19/fermingadrengir-endurtoku-myndatokuna-a-40-ara-fermingarafmaeli/