Það sem af er árinu 2020 hafa rúmlega 1100 fréttir verið birtar á skagafrettir.is. Árið 2020 er metár hvað varðar aðsókn og lestur en skagafrettir.is fór formlega í „loftið“ þann 10. nóvember árið 2016.
Á næstu dögum ætlum við að rifja upp 20 mest lesnu fréttir ársins 2020. Allar greinarnar sem komust inn á topp 20 listann voru með yfir 3000 heimsóknir.
Um miðjan janúar 2020 bárust fregnir af því að ný fiskbúð myndi opna á Akranesi. Sú frétt vakti mikla athygli Skagamanna og Skagafiskur við Kirkjubrautina hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá íbúum Akraness frá því að verslunin opnaði í mars á þessu ári.
13. sæti
14. sæti
15. sæti
16. sæti
17. sæti
18. sæti
19. sæti
20. sæti
Í 20. sæti er skemmtileg frétt þar sem að fermingarbræður ákváðu að endurtaka myndatökuna sem framkvæmd var þann 18. maí árið 1980.