Skagamenn eru hvattir til að taka þátt í viðhorfskönnun um Langasandssvæðið

Langasandssvæðið á Akranesi er eitt áhugaverðasta útivistarsvæði landsins og á næstunni hefst hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun svæðisins til framtíðar.

Hugmyndasamkeppninnin unnin í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkiteka, FÍLA.

Akraneskaupstaður óskar eftir því að íbúar bæjarsins á öllum aldri taki þátt í verkefninu með því að taka þátt í rafrænni viðhorfskönnun – sem má nálgast hér.

Niðurstöður könnunarinnar verða síðan notaðar sem fylgigagn fyrir þá aðila sem taka þátt í hugmyndasamkeppninni.

Í tilkynningu frá Akraneskaupstað segir m.a. að markmiðið með samkeppninni sé að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið.

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri segir að um sé að ræða stór verkefni um dýrmætt svæði – og því mikilvægt að kalla eftir skoðunum flestra.

„Við viljum hefja þessa vegferð og skapa svæði sem mótast af vellíðan og heilsu fyrir alla notendur og skiptir okkur máli að fá íbúana með í lið en þetta svæði er okkar svæði“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri.

Í ljósi heimsfaraldurs er ekki hægt að vera með hefðbundna íbúafundi og hefur þess í stað verið útbúin rafræn viðhorfskönnun um þarfir, upplifun og framtíðarsýn íbúa um svæðið. Fá hér íbúar tækifæri að láta sínar skoðanir, þarfir og áherslur í ljós.

Munu niðurstöður könnunarinnar vera fylgigagn við auglýsingu um samkeppnina.

Könnunin samanstendur af sextíu spurningum sem flestar eru krossaspurningar og tekur um 15 mínútur að svara.

Þátttakendur hafa kost á að komast í pott sem dregið verður úr um og fá einhverjir heppnir gjöf að launum.

Allir ungir sem aldnir eru hvattir til að taka þátt. Könnunin verður opin út janúarmánuð.