Nær Viktor Elvar að stöðva sigurgöngu „Benna Valtýs“?

Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í tólftu viku tímabilsins. Vegna hátíðarhalda og almenns sofandaháttar á ritstjórn Skagafrétta tókst ekki að segja frá frábærri viðureign í 11. umferð áskorunarinnar. Sú viðureign fer af þeim sökum ekki í sögubækurnar.

Getraunakeppnin er með þeim hætti að keppendur fylla út 96 raðir í Enska boltanum. Sá sem fær fleiri rétta er sigurvegari og fær nýjan mótherja í næstu umferð. Ef jafnt er hjá keppendum þá halda þeir báðir áfram í næstu umferð.

Benedikt Valtýsson er að hefja sína sjöttu viku í getraunaáskoruninni en hann sigraði Jón Gunnlaugsson um síðustu helgi. Benedikt hefur þar með jafnað árangurinn sem Jón Örn Arnarson náði á fyrstu vikum keppninnar en hann var samfellt í sex vikur með í áskoruninni.

Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur í gegnum tíðina verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum á Akranesi. Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur tippklúbbur KFÍA lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og er það leikur einn að taka þátt og styðja við bakið á KFÍA á sama tíma.

Úrslit úr fyrri umferðum:

1. Sigmundur Ámundason – Kristleifur Skarphéðinn Brandsson.
2. Sigmundur Ámundason – Jón Örn Arnarson.
3. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
4. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
5. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
6. Jón Örn Arnarson – Örn Gunnarsson.
7. Örn Gunnarsson – Sigurður Páll Harðarson.
8. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýsson.
9. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýssson.
10. Benedikt Valtýssson – Þuríður Magnúsdóttir.
11. Benedikt Valtýsson – Arnbjörg Stefánsdóttir
12. Benedikt Valtýsson – Jón Gunnlaugsson.
13. Benedikt Valtýsson – Viktor Elvar Viktorsson


Í lok tímabilsins fer fram keppni á milli þeirra tippsérfræðingar sem sigrað hafa í flestum viðureignum eða náð bestum árangri. Nánari útfærsla á úrslitakeppninni verður birt síðar.

Einar Brandsson er í forsvari fyrir getraunastarf KFÍA. Einar segir í samtali við Skagafréttir að vegna Covid-19 sé ekki hægt að hefja hið hefðbundna getraunastarf með venjulegum hætti.

„Það er mikil þörf að styðja við bakið á KFÍA með þessum hætti. Þeir sem vilja taka þáttt geta sent inn sínar raðir á [email protected] – það þarf að gerast fyrir kl. 10.00 á laugardagsmorgni.

Þessar raðir verða þá settar inn í kerfið hjá okkur. Þeir sem tippa í gegnum getraunakerfi KFÍA styrkja okkar félag aukalega þar sem hærra hlutfall af hverri röð rennur beint til KFÍA heldur en ef tippað er á 1×2.is eða á sölustöðum.

Þeir sem tippa ráða svo hvort þeir setja miðann inn í kerfi 1×2.is til að eiga möguleika á vinning. Miði með 96 röðum kostar 1.440 kr,“ segir Einar Brandsson við skagafrettir.is.


Viktor Elvar spáir þannig fyrir leiki helgarinnar:

Benedikt spáir þannig fyrir leiki helgarinnar: