Nýjustu Covid-19 tölurnar – 13. apríl 2021 – smit á Akranesi og 20 í sóttkví

Alls greindust þrír einstaklingar með Covid-19 smit í gær og voru þeir allir utan sóttkvíar.

Á Vesturlandi eru þrír einstaklingar í einangrun og þar af einn á Akranesi. Og alls eru 25 einstaklingar í sóttkví í landshlutanum og þar af 20 á Akranesi.

Þetta kemur fram á vefnum covid.is og í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.