Bæjarbúar hvattir til að hreinsa og fegra umhverfið

Akraneskaupstaður hvetur alla bæjarbúa, unga sem aldna sem og fyrirtæki, stofnanir og hópa til að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins á Akranesi, bæði í nærumhverfi og á förnum vegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.

Hvatning er að hreinsa og fegra lóðirog umhverfi en einnig má sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund og ánægjan af því að fara út og hreyfa sig verður margfalt meiri. Nú er akkúrat tíminn þar sem rusl er áberandi, snjórinn að fara og gróðurinn að taka við sér, það gerir ruslatínslu aðveldari og kjörið tækifæri til að hreyfa sig og fegra umhverfið í leiðinni.

Grenndarstöðvar verða staðsettar á þremur stöðum í bænum, við Akraneshöll, Bíóhöllin og við Kalmansbraut og geta íbúar og hópar skilað þar endurgjaldslaust því sem saman safnast. Ætlast er til sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum. Stöðvarnar standa til 9. maí næstkomandi.

Íþróttabandalag Akraness hefur sl. ár tekið þátt í þessum viðburði með aðildarfélögum sínum. Í ár verður því frestað fram á haust þar sem ekki þykir skynsamlegt að efna til hópamyndunar. ÍA og Akraneskaupstaður stefna á átak í kringum dag íslenskrar náttúru sem haldinn er árlega 16. september.