Sundfélag Akraness gerir samkomulag við efnilega keppendur

Sindri Andreas Bjarnason og Enrique Snær Llorens gerðu nýverið samkomulag við Sundfélag Akraness.

Um er að ræða samning um úthlutun úr afrekssjóði Sundfélags Akraness.

Styrktaraðlilar Sundfélags Akraness fjármagna sjóðinn en markmiðið er að styðja sundmenn fjárhagslega í afreksstarfi eins t.d. niðurgreiðslu á Íslandsmeistaramótum, landsliðsverkefnum og æfinga/keppnisferðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Stjórn Sundfélags Akraness stefnir að því að skrifa undir samning við fleiri sundmenn á næstu mánuðum.