Grundaskóli fyrstur í mark í keppninni „Hjólað í vinnuna“


Grundaskóli á Akranesi fékk nýverið verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ sem fór fram í 19. sinn. Grundaskóli sigraði í flokki vinnustaða með 70-129 starfsmenn en það er Íþrótta – og Ólympíusamband Íslands sem stendur að þessu verkefni.

Í ár voru þátttakendur alls 6.271 talsins og vinnustaðir voru alls 533 sem skráðu 1.124 lið til keppni. Skráðir kílómetrar voru 381.395 km sem jafngildir um 285 hringjum í kringum landið í þessari heilbrigðu vinnustaðakeppni sem stóð yfir dagana 5.-25. maí. 

Alla vinnustaði í verðlaunasæti má finna hér á vefsíðu verkefnisins.
Margrét Þorvaldsdóttir og Katrín Leifsdóttir – starfsmenn Grundaskóla tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Grundaskóla.


Á meðfylgjandi mynd eru Margrét Þorvaldsdóttir og Katrín Leifsdóttir starfsmenn Grundaskóla sem unnu í flokki 70-129 starfsmenn. Katrín heldur á verðlaununum en hún hefur verið forsprakkinn í Hjólað í vinnuna átakinu í Grundaskóla í fjöldamörg ár en skólinn hefur unnið átakið í þessum flokki þó nokkrum sinnum. Nú fer hún á eftirlaun en treystir á samstarfsfólkið til þess að halda heiðri Grundaskóla á lofti. Starfsfólk Hjólað í vinnuna þakkar henni fyrir að vera mikill drifkraftur fyrir átakið úti í samfélaginu.

Fyrir mörgum er verkefnið vorboðinn ljúfi og er verkefnið stór þáttur í fyrirtækjamenningunni á mörgum stöðum. Landsmenn hafa tekið verkefninu mjög vel og hefur hjólaumferð aukist verulega síðan verkefnið fór fyrst af stað.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Það er nefnilega einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi að nota virkan ferðamáta.

Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is.

Fleiri myndir af verðlaunaafhendingu er hægt að finna hér á myndasíðu ÍSÍ.

Verðlaun voru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall þátttökudaga. Í kílómetrakeppninni voru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir bæði heildarfjölda kílómetra og hlutfall kílómetra miðað við fjölda starfsmanna.