Björn Viktor annar á stigalista í 17-18 ára flokki á unglingamótaröð GSÍ


Skagamaðurinn Björn Viktor Viktorsson úr Golfklúbbnum Leyni varð í öðru sæti á stigalistanum í flokki 17-18 ára á unglingamótaröð GSÍ í golfi.

Böðvar Bragi Pálsson, GR, varð stigameistari í þessum flokki.

Böðvar Bragi tók þátt á fjórum mótum af alls fimm á keppnistímabilinu og varð stigameistari með töluverðum mun. Hann sigraði á þremur þeirra – og landaði báðum Íslandsmeistaratitlunum í þessum flokki, holukeppni og höggleik.

Björn Viktor lék á öllum fimm mótunum og hann varð í 2. sæti á þremur þeirra.

Mikael Máni Sigurðsson, GA, varð þriðji á stigalistanum en hann sigraði á einu móti af alls fimm. Alls tóku 27 keppendur þátt í mótum tímabilsins í flokki 17-18 ára pilta.

Mikael Máni Sigurðsson, GA, Böðvar Bragi Pálsson, GR og Björn Viktor Viktorsson, GL. Mynd/golf.is

Stigalisti 17-18 ára piltar: