Heimir ráðinn sem framkvæmdastjóri viðskiptalausna hjá Advania


Skagamaðurinn Heimir Fannar Gunnlaugsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hann hefur starfað hjá Microsoft á Íslandi síðan 2013, lengst af sem forstjóri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania sem er hér í heild sinni fyrir neðan.

Heimir hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Undanfarin tvö ár hefur hann aðstoðað alþjóðleg fyrirtæki við að nýta viðskiptalausnir Microsoft. Þar á undan stýrði hann skrifstofu Microsoft á Íslandi í sex ár. Advania hefur um árabil boðið upp á viðskiptalausnir Microsoft, bæði Business Central og Dynamics365. Hjá fyrirtækinu starfar fjölmennur hópur Microsoft- sérfræðinga.

Heimir tekur við af Einari Þórarinssyni sem hverfur til annarra starfa innan Advania og verður Heimi innan handar fyrst um sinn.

„Ég hlakka mikið til að kynnast betur samstarfsfólki hjá Advania og miðla af reynslu minni. Ég veit að Advania gerir frábæra hluti bæði á Íslandi og Norðurlöndum og ég vona innilega að ég geti hjálpað til á þeirri vegferð. Það heillar mig að leiða gríðarlega öflugt teymi, landsliðsfólk í hverri stöðu, sem hefur náð frábærum árangri. Ég veit að Advania hefur verið í lykilhlutverki í stafrænni umbyltingu íslenskra fyrirtækja og ég vona að reynsla mín nýtist til að halda því áfram,“ segir Heimir.

„Það er mikill styrkur að fá Heimi í lið með okkur. Hann býr yfir tengslaneti, þekkingu og reynslu sem styrkir þjónustu okkar. Tæknin virðir engin landamæri og þess vegna held ég að reynsla Heimis af Microsoft gagnist okkar viðskiptavinum gríðarlega mikið. Einari Þórarinssyni þökkum við frábært starf. Hann hefur, ásamt teymi viðskiptalausna, lyft grettistaki í að skýjavæða lausnir okkar og efla þjónustuna,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania.