ÍA er aðeins einum leik frá úrslitaleiknum í Mjólkurbikarkeppni KSÍ

Karlalið ÍA í knattspyrnu tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum í Mjólkurbikarnum með 3-1 sigri á útivelli gegn 2. deildarliði ÍR í Breiðholti.

Leikurinn fór fram á heimavelli ÍR. Heimamenn komust yfir á 17. mínútu með marki sem Pétur Hrafn Friðriksson skoraði. Þórður Þorsteinn Þórðarson jafnaði metinn fyrir ÍA á 45. mínútu – með snilldarskoti.

Gísli Laxdal Unnarsson kom ÍA yfir á 55. mínútu og Guðmundur Tyrfingsson kom ÍA í 3-1 með góðu marki undir lok leiksins.

ÍA hefur ekki komist í undanúrslit bikarkeppni KSÍ allt frá árinu 2003 eða í 18 ár – en það ár varð liðið bikarmeistari í 9. sinn. ÍA sigraði Fram í 16-liða úrslitum 3-0 og FH í 8-liða úrslitum 1-0.

Fjöldi bikarmeistaratitla í karlaflokki frá upphafi
KR14
Valur11
ÍA9
Fram8
ÍBV5
Keflavík4
FH2
Fylkir2
Víkingur R.2
Breiðablik1
ÍBA1
Stjarnan1