Ævintýralegur lokakafli tryggði ÍA áframhaldandi veru í efstu deild

Karlalið ÍA í knattspyrnu tryggði sætið sitt í efstu deild með glæsilegum 3-2 sigri á útivelli í dag á útivelli gegn Keflavík.

ÍA gat aðeins haldið sæti sínu í Pepsi Max deildinni með því að vinna Keflavík og það verkefni tókst með undraverðum hætti.

Skagamenn fengu vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Steinar Þorsteinsson náði ekki að koma boltanum í markið. Ástbjörn Þórðarson, sem lék um tíma með ÍA sem lánsmaður úr KR, kom Keflavík yfir með stórkostlegu marki undir lok fyrri hálfleiks.

Staða ÍA varð enn verri þegar Óttar Bjarni Guðmundsson fyrirliði ÍA fékk boltann í sig og skoraði sjálfsmark á 64. mínútu.

Leikmenn ÍA gáfust ekki upp og á 68. mínútu skoraði varnarmaðurinn Alexander Davey mark fyrir ÍA sem kveikti svo sannarlega neista í liðinu. Guðmundur Tyrfingsson, sem kom inná sem varamaður á 57. mínútu, jafnaði metinn fyrir ÍA á 72. mínútu. Sindri Snær bætti svo við þriðja markinu fjórum mínútum síðar og staðan 3-2 fyrir ÍA.

Það urðu lokatölur leiksins og sæti ÍA í efstu deild tryggt.