Íslensku menntaverðlaunin 2021 – Heiðrún ein af þeim sem er tilnefnd

Íslensku menntaverðlaunin verða afhent á næstunni. Heiðrún Hámundadóttir, kennari við Brekkubæjarskóla og Tónlistarskólann á Akranesi, er ein af þeim sem fær tilnefningu að þessu sinni. Þeir sem fá tilnefningu hafa lagt sit af mörkuim við framúrskarandi skólastarf, menntaumbætur og þróunarverkefni.

Heiðrún er tilnefnd fyrir metnaðarfulla og árangursríka tónmennta- og tónlistarkennslu

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt í þremur aðalflokkum:

Fjölmargar standa að baki verkefninu.


Embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneyti, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar veita árlega þessa viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólastarf eða aðrar umbætur í menntamálum.

Verðlaunin njóta stofnstyrkja sem mennta- og menningarmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hafa veitt.

Verðlaunin verða veitt í fjórum flokkum (smellið á heiti þeirra sem tilnefnd eru til að fá nánari upplýsingar):

A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur

  • Frístundamiðstöðin Tjörnin, skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, er tilefnd fyrir framsækið og fjölbreytt þróunarstarf, frumkvæði og nýbreytni
  • Leikskólinn Aðalþing er tilnefndur fyrir framsækið, skapandi skólastarf og lýðræðislega starfshætti
  • Tónlistarskóli Grindavíkur er tilnefndur fyrir framúrskarandi tónlistarkennslu og þróunarstarf

B. Framúrskarandi kennari

  • Anna Gréta Guðmundsdóttir, kennari við leikskólann Sæborg, fyrir skapandi og lýðræðislegt leikskólastarf
  • Garðar Geirfinnsson, kennari við Grunnskólann í Þorlákshöfn, er tilnefndur fyrir áhugaverða og skapandi náttúrufræðikennslu
  • Hanna Rún Eiríksdóttir, kennari við Klettaskóla, er tilnefnd fyrir framúrskarandi kennslu nemenda með fötlun, meðal annars fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta
  • Heiðrún Hámundar, kennari við Brekkubæjarskóla og Tónlistarskólann á Akranesi, er tilnefnd fyrir metnaðarfulla og árangursríka tónmennta- og tónlistarkennslu
  • Hilmar Friðjónsson, kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri, er tilnefndur fyrir að þróa frjóar og áhugavekjandi leiðir í stærðfræðikennslu

C. Framúrskarandi þróunarverkefni

  • Austur Vestur: Sköpunarsmiðjur
    Þróunarverkefni í Ingunnarskóla, Selásskóla og Vesturbæjarskóla sem beinist að því að efla skapandi hugsun, frumkvæði og nýsköpun
  • Leiðsagnarnám / Skóla og frístundasvið Reykjavíkur / Nanna Kr. Christiansen
    Þróunarverkefni um eflingu námsmenningar sem stuðlar að aukinni ábyrgð nemenda á eigin námi
  • Vendikennsla í raungreinum / Gauti Eiríksson
    Þróunarverkefni sem byggist á gerð myndbanda fyrir náttúru- og stærðfræðkennslu fyrir nemendur í grunnskólum

Auk þess verða veitt hvatningarverðlaun