Sementsreiturinn er eitt eftirsóttasta byggingarsvæði landsins

Í dag óskaði Akraneskaupstaður eftir tilboðum í byggingarétt á 6 lóðum á Sementsreit á Akranesi með formlegum hættil. Undirbúningur að þessu verkefni hefur staðið í nokkur misseri.

Um er að ræða byggingarétt á fjöleignarhúsum á 3 hæðum auk bílakjallara á 4 lóðum á uppbyggingar-reit D og á 2 lóðum á uppbyggingarreit C. Öllum lóðunum verður úthlutað til sama aðila og hafa áhugasamir aðilar frest fram til 3. desember að skila inn tilboðum.

Alls er gert ráð fyrir 108 íbúðum í þessum áfanga en til stendur að byggja alls 400 íbúðir á Sementsreitnum ásamt þjónustuhúsnæði.

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, segir í viðtali við Fréttablaðið að Sementsreiturinn sé líklega sá eftirsóttasti á suðvesturhorni landsins.

„Það er alveg gríðarlegur áhugi verktaka á reitnum. Loksins eftir margra ára ferli á að gefa mönnum færi á að bjóða í reitinn,“ segir hann. „Þetta er upphafið á töluverðri sókn hjá okkur á Akranesi í því að bjóða fram mikið magn af lóðum.“ Auk þeirra 400 íbúða sem til stendur að reisa á sementsreitnum stendur til að reisa 200 íbúðir á Dalbrautarreit og um 670 íbúðir sem bætast við í Skógarhverfi,“ segir Sævar m.a. í viðtalinu.

Hér má sjá byggingarreitina C og D þar sem byggja á 108 íbúðir.
Hér má sjá loftmynd af svæðinu eins og það er í dag.
Hér má sjá loftmynd af svæðinu eins og það gæti litið út í framtíðinni.