Ísak Bergmann er yngsti markaskorari A-landsliðs Íslands frá upphafi

Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gær yngsti markaskorari í sögu íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu karla. Skagamaðurin skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark í gær þegar hann jafnaði metin gegn Armeníu á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2022. Ísak Bergmann kom inná í hálfleik og jafnaði eins og áður segir leikinn sem endaði 1-1.

Ísak Bergmann bætti met sem annar Skagamaður átti, Bjarni Guðjónsson, sem er föðurbróðir Ísaks.

Á vef Vísis kemur fram í grein sem Óskar Ófeigur Jónsson skrifar og þar kemur fram að hinn 18 ára gamli Skagamaður hafi bætti met Lárusar Guðmundssonar og einnig met Bjarna Guðjónssonar.

Ísak, sem varð 18 ára á árinu, bætti met Lárusar Guðmundssonar um sex daga yfir yngsta markaskorara landsliðsins frá upphafi. Lárus var átján ára, sex mánaða og 21 dags gamall er hann skoraði fyrir Ísland í vináttulandsleik gegn Grænlandi í júlí 1980.

Bjarni Guðjónsson, föðurbróðir Ísaks, varð yngsti markaskorari Íslands í keppnisleik þegar hann skoraði í sigri á Liechtenstein árið 1997. Bjarni var átján ára, sjö mánaða og fimmtán daga gamall er hann skoraði á móti Liechtenstein. Ísak Bergmann er átján ára, sex mánaða og fimmtán daga gamall.

„Ég er fyrst og fremst svekktur að ná ekki í þrjú stig. En bara gaman að skora fyrir landsliðið,“ sagði Ísak við RÚV eftir leikinn.

„Bjarni frændi minn átti metið. Ég var með það markmið að slá það. Það er bara gaman. Ég vissi að ef ég myndi skora í september eða október, að þá myndi ég ná því.“

Ísak fékk gult spjald undir lokin og verður í banni í næsta leik. „Mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki hjálpað liðinu, en það er bara áfram gakk.“

Birki Bjarnason fagnar markinu ásamt Ísak Bergmann. Mynd/Hafliði Breiðfjörð – fotbolti.net