Stefnir í góða aðsókn á bikarúrslitaleikinn – ertu búinn að tryggja þér miða?

Það stefnir í góða aðsókn á bikarúrslitaleik ÍA og Víkings úr Reykjavík í Mjólkurbikarkeppni KSÍ.

Síðdegis í gær var búið að selja tæplega 4.600 miða á leikinn sem fer fram laugardaginn 16. október kl. 15.00 á Laugardalsvelli.

Athygli er vakinn á því að miðar eru aðeins seldir á Tix.is. – það er því ekki miðasala á Laugardalsvelli fyrir leik.

Engar takmarkanir eru á fjölda áhorfenda á leikinn en Laugardalsvöllur rúmar rétt tæplega 10.000 áhorfendur.

Smelltu hér fyrir miðasölu ÍA á Tix.is

Áhorfendur þurfa ekki að fara hraðapróf vegna Covid-19 til að fara á leikinn.

Til samanburðar þá voru 4257 áhorfendur á úrslitaleik Víkings R. gegn FH árið 2019 í Mjólkurbikarkeppninni – en ekki var leikið til úrslita 2020 vegna heimsfaraldursins.

Frá árinu 2001 hafa að meðaltali verið 4337 áhorfendur á bikarúrslitaleik karla hjá KSÍ.

Miðaverð

Fullorðnir – 2000 krónur

16 ára og yngri – 500 krónur

Fjöldi áhorfenda á bikarúrslit KSÍ í karlaflokki 2001-2019

ÁrLiðLiðÁhorfendur
2019Víkingur R.FH4257
2018StjarnanBreiðablik3814
2016ÍBVFH3511
2015ValurKR5751
2014KRKeflavík4694
2013FramStjarnan4318
2012StarnanKR5080
2011ÞórKR5327
2010FHKR5438
2009FramBreiðablik4766
2008KRFjölnir4524
2007FHFjölnir3739
2006KRKeflavík4699
2005FramValur5162
2004KeflavíkKA2049
2003ÍAFH4723
2002FylkirFram3376
2001FylkirKA2839
Meðaltal 2001-20194337

Smelltu hér fyrir miðasölu ÍA á Tix.is

Hér má sjá mynd sem sýnir inngang inn á Laugardalsvöllinn.
Þetta eru hólfin fyrir stuðningsmenn ÍA;

ÍA – Hólf E, F, G og H – Griðungur 1
ÍA – Hólf I – Griðungur 2
ÍA – Hólf N – Gammur