Framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness kjörin í varastjórn UMFÍ

Sambandsþing Ungmennafélags Íslands fór fram á Húsavík um helgina. Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness, var kjörin í varastjórn UMFÍ á þinginu.

Þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar frá íþróttabandalagi setjast í stjórn UMFÍ því íþróttabandalögin fengu aðild að UMFÍ árið 2019. Málfríður Sigurhansdóttir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur var einnig kjörin í stjórn UMFÍ.

Jóhann Steinar Ingimundarson er nýr formaður UMFÍ. Hann tekur við af Hauki Valtýssyni, sem gegnt hefur embætti formanns frá árinu 2015 og ákvað að gefa ekki kost á sér að nýju. Jóhann var sjálfkjörinn því enginn bauð sig fram í formannsembættið.

Nokkrar breytingar urðu á stjórn UMFÍ. Málfríður Sigurhansdóttir kom ný inn í stjórnina fyrir hönd Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR). Aðrir í stjórn UMFÍ voru kosin þau Gunnar Þór Gestsson frá Ungmennasambandi Skagafjarðar (UMSS), Ragnheiður Högnadóttir frá Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu (USVS), Guðmundur Sigurbergsson fyrir hönd Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK), Gunnar Gunnarsson fyrir Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) og Sigurður Óskar Jónsson frá Ungmennasambandinu Úlfljóti (USÚ).

Í varastjórn voru kosin þau Hallbera Eiríksdóttir frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar (UMSB), Lárus B. Lárusson frá Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK), Gissur Jónsson frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) og Guðmunda Ólafsdóttir frá Íþróttabandalagi Akraness (ÍA).

Þær Málfríður og Guðmunda koma báðar frá íþróttabandalögum sem fengu aðild að UMFÍ á sambandsþingi UMFÍ árið 2019.