Fjölmargir ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á framkvæmdasvæðinu á Kjalarnesi

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi þann 3. nóvember s.l. en 233 ökutæki voru mæld á einni klukkustund.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Móa á Kjalarnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 233 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.