Húsnæðisvandi mæðrastyrksnefndar leystur

Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is fær mæðrastyrksnefnd á Akranesi tæplega hálfa milljón kr. frá Akraneskaupstað í styrk vegna komandi jólaúthlutunar.

Bæjarráð Akraness samþykkti tillögu þess efnis á síðasta fundi ráðsins. Þar kom einnig fram að mæðrastyrksnefndinni hafði ekki yfir að ráða húsnæði til þess að geyma matvöru og annað sem fylgir starfssemi nefndarinnar.

Í gær bárust þær fregnir að búið væri að leysa húsnæðisvanda nefndarinnar – og fær mæðrastyrksnefnd aðstöðu við hæfi á Breiðarsvæðinu í húsnæði sem þar sem að HB/Grandi/Brim var áður til húsa.

Jólaúthlutun mæðrastyrksnefndar fer fram um miðjan desember.

Mæðrastyrksnefnd hefur ekki yfir húsnæði að ráða til þess að taka á móti matvörum og óskar ráðið eftir aðstoð frá Akraneskaupstað við að leysa það verkefni.

Í greinargerð frá mæðrastyrksnefnd kemur fram að 106 fjölskyldur hafi fenginð aðstoð á Akranesi, Hvalfjarðarsveit og í Borgarbyggð.

Söfnun nefndarinnar og stuðningur úr nærsamfélaginu fyrir ári síðan var það mikill að hægt var að úthluta úr sjóði nefndarinn fram á vorið 2021 og einnig í ágústmánuði 2021.

Mæðrastyrksnefnd er byrjuð að safna fjármagni fyrir jólaúthlun 2021 og er hægt að styðja við verkefnið með því að leggja inn á eftirfarandi reikningsnúmer.

Reikningsnúmer: 552-14-402048
Kennitala: 411276-0829