Uppbygging Festis hf. við Hausthúsatorg hefur talsverðar breytingar í för með sér

Talsverðar breytingar verða gerðar við Hausthúsatorg á Akranesi á næstu misserum vegna framkvæmda sem tengjast uppbyggingu Festis hf. / N1 á svæðinu.

Breytingin tengist samkomulagi sem Akraneskaupstaður hefur gert við Festi hf. um að bæjarfélagið leysi til sín lóðir fyrirtækisins við Þjóðbraut (Skútan) og Dalbraut (dekkjaverkstæði).

Við Hausthúsatorg mun fyrirtækið byggja aðstöðu fyrir verslun, eldsneytisafgreiðslu, dekkja – og smurþjónustu. Breytingar á deiliskipulagi fyrir svæðið hefur nú verið samþykkt í bæjarstjórn og fer það í hefðbundið ferli í stjórnsýslunni.

Uppbygging Festis hf. / N1 verður norðan við Hausthúsatorgið en torgið er staðsett rétt ofan við verslunarkjarnann þar sem að Bónus og Apótek Vesturlands eru staðsett.

Í deiliskipulaginu kemur fram að gerðar verða breytingar á aðkomu ökutækja inn á Akranes í gegnum þjóðveginn sem liggur norðan við Akrafjall.

Þjóðvegurinn verður færður til norðurs og innkoma ökutækja sem koma að norðanverðu inn í bæinn (Akrafjallsveg) verður í gegnum Hausthúsatorg.

Upplýsingasvæði fyrir ferðamenn og áningarstaður er til staðar á svæðinu í dag þar sem að nýju byggingarnar verða reistar. Í deiliskipulaginu er kvöð um sérstakt upplýsingarsvæði fyrir vegfarendur og komið verði upp jarðvegsmön til að minnka ásýnd frá þjóðvegi.

Meginútivistarstíg og reiðleið verður einnig breytt þannig að þeir svegjast norður fyrir þjóðveginn eða Akrafjallsveg til norðurs.

Uppbyggingarsvæði Festis hf. /N1 verður á þessum stað – þar sem að upplýsingaspjald og áningastaður er í dag.
Uppbyggingarsvæði Festis hf. /N1 verður á þessum stað – þar sem að upplýsingaspjald og áningastaður er í dag. Hér mun þjóðvegurinn / Akrafjallsvegur til norðurs tengjast Hausthúsatorginu.
Uppbyggingarsvæði Festis hf. /N1 á Hausthústorg – hér til vinstri mun þjóðvegurinn /Akrafjallsvegur tengjast hausthúsatorg.
Uppbyggingarsvæði Festis hf. /N1 verður á þessum stað við Hausthúsatorg – og hér má sjá hvernig þjóðvegurinn /Akrafjalls mun tengjast hringtorginu.