Einföld útskýring fréttakonu RÚV á starfi sínu vekur mikla athygli á veraldarvefnum

Skagakonan, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, hefur vakið mikla athygli fyrir fagmannleg vinnubrögð sem fréttamaður RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum.

Elsa María ólst upp á Akranesi, býr í Borgarnesi og ferðast reglulega um Vesturlan og Vestfirði þaðan sem hún flytur fréttir.

Nýverið birti Elsa María stutt myndband þar sem hún útskýrir hvað hún er að gera í vinnunni – og það er óhætt að segja að myndbandið hafi vakið athygli.

Um 30.000 hafa skoðað myndbandið frá því að það fór í loftið fyrir tveimur dögum.