Helgi Laxdal kjörinn fimleikakarl ársins 2021 af Fimleikasambandi Íslands

Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Kolbrún Þöll Þorradóttir voru í dag útnefnd sem fimleikakarl og fimleikakona ársins 2021 af Fimleikasambandi Íslands.

Frá þessu er greint á vef Fimleikasambands Íslands.

Helgi Laxdal hóf íþróttaferilinn á Akranesi þar sem hann er fæddur og uppalinn. Hann hefur verið í fremstu röð í hópfimleiku á alþjóðlegum vettvangi í mörg ár og náð frábærum árangri. Í umsögn Fimleikasambands Íslands um Helga Laxdal segir:

Fimleikakarl ársins er Helgi Laxdal Aðalgeirsson.

„Helgi var í karlalandsliði Íslands á nýafstöðnu Evrópumóti í hópfimleikum þegar liðið tryggði sér 2. sæti en það er í fyrsta sinn sem karlaliðið kemst á pall. Hann keppti fyrstur í heiminum með framseríuna skrúfa-kraftstökk-tvöfalt strekkt heljarstökk með tveimur hálfri skrúfu á dýnu og braut þar blað í fimleikasögunni. Hann var valinn í úrvalslið mótsins, einn af sex fimleikamönnum á öllu mótinu sem fengu þann heiður, en Helgi var valinn fyrir stökkin sem hann framkvæmdi á dýnu.

Helgi keppti einnig með yfirslag með tvöföldu heljarstökki og hálfri skrúfu og þrefalt heljarstökk með tveimur og hálfri skrúfu á trampólíni og er þar á pari við allra bestu fimleikamenn heims í erfiðleika. Helgi keppti ásamt liðinu sínu á Bikar og Íslandsmóti í vor og hampaði þar Íslands og Bikarmeistaratitlum. Hann hefur löngum vakið athygli fyrir mikla útgeislun á dansgólfinu þar sem hann nýtur sín vel og skilar dansinum virkilega vel frá sér, Helgi er einnig framúrskarandi góður stökkvari og keppir iðullega í öllum umferðum þegar að liðið hans keppir.“

Fimleikakona ársins er Kolbrún Þöll Þorradóttir.

„Kolbrún Þöll var máttarstólpi í kvennalandsliði Íslands á Evrópumóti í hópfimleikum nú í desember þegar liðið tryggði sér Evrópumeistaratitilinn. Kolbrún keppti í öllum umferðum í undanúrslitum og í úrslitunum og skilaði öllum sínum stökkum og gólfæfingum með glæsibrag. Stökkin hennar voru á meðal þeirra erfiðustu sem framkvæmd voru á mótinu og ber þar helst að nefna tvöfalt strekkt heljarstökk með þremur og hálfri skrúfu, sem hún framkvæmdi á trampólíni bæði í undanúrslitum og úrslitum við mikinn fögnuð fimleikaheimsins. Kolbrún Þöll er fyrsta konan til þess að keppa með það stökk á Alþjóðlegu móti, hún keppti einnig með þetta stökk 2016, þá í unglingaflokki, en á þeim 5 árum hefur engin önnur kona keppt með stökkið, sem er til marks um hversu erfitt það er. Kolbrún Þöll var ein af sex fimleikakonum á EM sem var valin í úrvalslið Evrópumótsins „All stars“ liðið, en hún hefur verið valin í það lið á síðustu 4 Evrópumótum, 2014, 2016, 2018 og núna 2021. Kolbrún var að keppa á sínu 5. Evrópumóti en hún var í sigurliði Íslands árið 2012, þegar stúlknaliðið varð Evrópumeistari og er þetta því hennar annar Evrópumeistaratitill. Kolbrún er fimleikakona á heimsmælikvarða sem eftir er tekið á öllum mótum, hvort sem er á Íslandi eða erlendis, vegna stórkostlegra hæfileika og góðrar framkvæmdar í stökkum, sem og í gólfæfingum. Kolbrún varð á árinu Íslands – og Bikarmeistari með félagsliði sínu, Stjörnunni, og spilar þar ekki síður stórt hlutverk en í landsliðinu.“