Skagamenn brutu ísinn og lönduðu fyrsta sigri tímabilsins í 1. deild karla í körfu

Skagamenn brutu ísinn í 1. deild karla á Íslandsmótinu í körfuknattleik í kvöld með 82-70 sigri gegn Hrunamönnum.

Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu og var þetta fyrsti sigur ÍA á tímabilinu. Staðan í hálfleik var 46-38 fyrir heimamenn.

Þetta var 12. leikur ÍA á tímabilinu og eins og áður segir var liðið án sigurs fram að leiknum í kvöld.

ÍA er enn í neðsta sæti deildarinnar en þar fyrir ofan er Hamar úr Hveragerði með 4 stig og Hrunamenn frá Flúðum eru með fjóra sigurleiki og 8 stig.

Hinn ungi og efnilegi leikmaður ÍA, Þórður Freyr Jónsson átti einnig frábæran leik, en hann skoraði alls 19 stig og skoraði alls 6 þriggja stiga körfur. Hann tók einnig 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

Christopher Khalid Clover var langatkvæðamestur í liði Skagamanna í kvöld en hann skoraði alls 26 stig og tók þar að aiki 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Hendry Engelbrecht lét mikið að sér kveða í varnarleik ÍA en hann tók alls 16 fráköst, varði alls 7 skot og gaf þar að auki 6 stoðsendingar. Hinn þaulreyndi leikmaður Ómar Örn Helgason lék einnig vel og skoraði 13 stig.

Myndasyrpa á fésbókarsíðu skagafrettir.is.

Frá leik ÍA og Hrunamanna. Mynd/skagaafrettir.is
Frá leik ÍA og Hrunamanna. Mynd/skagaafrettir.is
Frá leik ÍA og Hrunamanna. Mynd/skagaafrettir.is
Frá leik ÍA og Hrunamanna. Mynd/skagaafrettir.is
Frá leik ÍA og Hrunamanna. Mynd/skagaafrettir.is