Enrique Snær Llorens er „Sundmaður ársins 2021“

Sundfélag Akraness veitti í dag viðurkenningar fyrir sundárið 2021.

Sundmaður Akraness er Enrique Snær Llorens Sigurðsson og Kristján Magnússon fékk Félagabikarinn 2021. Viktoria Emilia Orlita fékk Ingunnarbikarinn og fjölmargir aðrir iðkendur fengu viðurkenningar.

Sundmaður Akraness: Enrique Snær Llorens Sigurðsson

  • Enrique Snær er Íslandsmeistari í 400m fjórsundi í 25m laug.
  • Á íslandsmeistaramótinu í 25m laug vann hann líka silfur í 200m fjórsundi, brons í 400m skriðsundi og 200m flugsundi.
  • Í boðsundi vann hann lika til silfurverðlauna í 4x50m skriðsundi og bronsverðlauna í 4x100m skriðsundi og 4×200 skriðsundi með liðsfélögum sínum.
  • Á IM50 vann hann til silfurverðlauna í 200m og 400m fjórsundi.
  • Á árinu hefur hann sett 9 Akranesmet.

Félagabikarinn fékk Kristján Magnússon

Kristján er duglegur að hvetja liðsfélaga sína áfram bæði á æfingum og á sundmótum. Hann sýnir liðsfélögum sínum mikla virðingu og er góður fyrir hópinn.
Hann leggur sig alltaf fram á æfingum og sýnir jákvætt viðhorf til æfinga og hefur mikinn metnað til að bæta sig.
Kristján er frábær fyrirmynd fyrir félagið.

Kristján Magnússon.

Ingunnarbikarinn fékk Viktoria Emilía

Ingubikarinn er veittur fyrir stigahæsta bringusundið 12 ára og yngri og er gefinn til minningar um Ingunni Guðlaugsdóttur.

Bikarinn fékk Viktoria Emilia Orlita fyrir 200 m bringusund á tímanum 3.26.32 sem gera 277 FINA stig.

Viktoria Emilia Orlita.



Viðurkenningu fyrir stigahæstu sundin hlutu:

Meyjur: Viktoria Emilia Orlita 277 stig.

Sveinar: Kajus Jatautas 135 stig.

Telpur: Arna Karen Gísladóttir 383 stig.

Drengir: Víkingur Geirdal Birnuson 339.

Stúlkur: Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 633 stig.

Piltar: Einar Margeir Ágústsson 624 stig.

Karlar: Enrique Snær Llorens Sigurðsson 670 stig.

Konur: Lára Jakobína Ringsted 403 stig.

Viðurkenningu fyrir bestu ástundun og framfarir á árinu 2021 hlutu:

Meyjur: Svava Guðfinna Ingvarsdóttir.

Sveinar: Eymar Ágúst Eymarsson.

Telpur: Íris Arna Ingvarsdóttir.

Drengir: Almar Sindri Daníelsson Glad.

Stúlkur: Karen Káradóttir.

Piltar: Guðbjarni Sigþórsson.