Nýjustu Covid-19 tölurnar á Akranesi – þriðjudaginn 21. desember 2021

Alls greindust 286 einstaklingar með Covid-19 smit innanlands í gær.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. Í fyrradag greindust 242 einstaklingar með Covid-19 á Íslandi.

Tveir síðustu dagar hafa því verið þeir stærstu hvað fjölda Covid-19 smita varðar frá upphafi heimsfaraldursins í byrjun árs 2020.

Á Vesturlandi eru 40 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og fjölgar þeim um 5 frá því í gær.

Á Akranesi eru 25 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit en þeir voru 21 á mánudaginn.

Nánar í upplýsingatöflum hér fyrir neðan frá Lögreglunni á Vesturlandi.