Kristín er á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2021

Samtök íþróttafréttamanna opinberuðu í dag, Þorláksmessu hverjir fengu flest atkvæði samtakanna í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2021.

Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona úr ÍA, er á meðal tíu efstu og er þetta í fyrsta sinn sem keppandi í kraftlyftingum frá Íþróttabandalagi Akraness kemur til greina í kjörinu á Íþróttamanni ársins.

ÍA hefur ekki átt fulltrúa á topp 10 listanum í þessu kjöri allt frá árinu 2001 eða í 20 ár.

Tveir íþróttamenn úr röðum ÍA hafa verið kjörnir Íþróttamenn ársins – Guðjón Guðmundsson, sundmaður 1972, og Ragnheiður Runólfsdóttir, sundkona, 1991.

Kristín fagnaði Evrópumeistaratitli í klassískum kraftlyftingum nýverið – þar sem hún keppti í -84 kg. flokki og sigraði hún í öllum þremur keppnisgreinunum – hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.

Kristín er fædd árið 1984 og keppir fyrir Kraftlyftingafélag Akraness.

Hún var kjörin kraftlyftingakona ársins hjá Kraftlyftingasambandi Íslands 2021.

Hér eru helstu afrek hennar á árinu.

Stigahæsti kraftlyftingamaður Íslands árið 2021 með 106,03 stig.
Önnur á heimslista í -84kg flokki
Evrópumeistari 2021
Bronsverðlaunahafi á HM
Gull í hnébeygju á EM
Gull í bekkpressu á EM
Gull í réttstöðulyftu á EM
Brons í hnébeygju á HM
Evrópumet í hnébeygju með 220 kg
Evrópumet í samanlögðu með 560 kg, en það er fjórði besti árangur sem náðst hefur í þessum flokki í sögunni.
Íslandsmeistari 2021
Hefur bætt öll Íslandsmet á árinu
Sigraði á Reykjavíkurleikunum 2021

Samtök íþróttafréttamanna hafa staðið fyrir kjörinu frá árinu 1956 og er kjörið jafn gamalt samtökunum.

Frá og með árinu 2012 hafa samtökin svo einnig valið lið ársins og þjálfara ársins.

Úrslitin í kjörinu verða kunngjörð í beinni útsendingu RÚV að kvöldi 29. desember.

Upplýsingar um tíu efstu í kjöri íþróttamanns ársins og þrjá efstu í kjörinu á liði ársins og þjálfara ársins má finna hér fyrir neðan.

Tíu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2021 í stafrófsröð:

Aron Pálmarsson, handboltamaður hjá Álaborg í Danmörku
Bjarki Már Elísson, handboltamaður hjá Lemgo í Þýskalandi
Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingamaður úr Ármanni
Kári Árnason, fótboltamaður í Víkingi R.
Kolbrún Þöll Þorradóttir, fimleikakona í Stjörnunni
Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona úr ÍA
Martin Hermannsson, körfuboltamaður í Valencia á Spáni
Ómar Ingi Magnússon, handboltamaður í Magdeburg í Þýskalandi
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, handboltakona í KA/Þór
Sveindís Jane Jónsdóttir, fótboltakona í Kristianstad í Svíþjóð

Þrjú efstu liðin í stafrófsröð:
Ísland, kvennalandslið í hópfimleikum
KA/Þór, mfl. kvenna í handbolta
Víkingur R., mfl. karla í fótbolta

Þrír efstu þjálfararnir í stafrófsröð:
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi í fótbolta
Vésteinn Hafsteinsson, kastþjálfari í frjálsíþróttum
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta