Golfklúbburinn Leynir gefur ráðið Einar Gest Jónsson sem vallarstjóra á Garðavelli. Einar Gestur er þaulreyndur í faginu en hann hefur á undanförnum árum starfað sem vallarstjóri á Brautarholtsvelli á Kjalarnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni.
Samkomulag milli Einars Gests og GL var handsalað þann 30. desember, og mun hann hefja störf hjá klúbbnum í febrúar/mars.
Einar Gestur er menntaður grasvallarfræðingur og lauk námi frá SRUC Elmwood college í Skotlandi árið 2005.
Hann hefur víðtæka reynslu í sínu fagi og hefur m.a. starfað hjá Golfklúbbi Húsavíkur, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nú síðast Golfklúbbi Brautarholts sem vallarstjóri.
Þá hefur hann einnig starfað við golfvelli í Skotlandi með námi og í Noregi.
Einar Gestur er uppalinn á Húsavík en hefur búið með eiginkonu sinni og þremur börnum á Akranesi í nokkur ár. Framkvæmdastjóri og stjórn GL vill bjóða Einar Gest hjartanlega velkominn til starfa hjá Golfklúbbnum Leyni.