Eyrún er nýr framkvæmdastjóri hjá Fimleikafélagi Akraness

Eyrún Reynisdóttir var á dögunum ráðin sem framkvæmdastjóri Fimleikafélags Akraness.

Eyrún hefur nú þegar hafið störf en hún þekkir vel innviði félagsins.

Á undanförnum árum hefur hún sinnt hópaþjálfun í sölum Jaðarsbakka, ásamt því að hafa verið í þjálfarateymi afreksfólks hjá Fimleikafélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fimleikafélag Akraness – er fjölmennasta félagið innann raða ÍA og hefur félagið vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum. Nýverið var tekin í notkun ný og glæsileg aðstaða þegar fimleikahúsið var opnað við hlið íþróttahússins við Vesturgötu.

Eyrún er með BSc gráðu í íþróttafræðum og með MS gráðu í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Hún hefur einnig reynslu af þjálfun og markaðsmálum frá sínum fyrri störfum og vel inni í fimleikaíþróttinni. Hún hefur m.a. starfað sem markaðs- og mannauðsfulltrúi hjá Skaginn 3X.

Samhliða framkvæmdastjórastarfinu mun Eyrún einnig starfa hjá Sportabler í hlutastarfi. Sportabler er samskipta og skipulags hugbúnaður sem flest íþróttafélög landsins nota í sínu starfi, sinnir hún sölu- og markaðsmálum þar.

Um leið og Fimleikafélag Akraness þakkar Sigrúnu Ríkharðsdóttur fyrrum framkvæmdastjóra félagsins fyrir sín störf bjóðum við nýjan framkvæmdastjóra hartanlega velkominn til starfa.