Búi og Þóranna slógu draumahöggin á Tenerife og La Gomera

Samkvæmt tölfræði sem birt er á vef Einherjaklúbbsins á Íslandi fara 1% kylfinga landsins holu í höggi árlega. Rétt tæplega þó, því 130-140 draumahögg eru slegin árlega af íslenskum kylfingum.

Kylfingar frá Akranesi fara vel af stað á þessu ári þrátt fyrir að það viðri ekki vel til golfleiks á Garðavelli á Akranesi.

Búi Örlygsson sló draumahöggið nýverið á Costa Adeje á Tenerife. Það gerði hinn knái Tottenhamstuðningsmaður á 10. braut sem er um 190 metrar að lengd.

Þóranna Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í dag á 8. braut á hinum frábæra La Gomera velli sem er staðsettur á samnefndri eyju rétt við Tenerife.

Samkvæmt tölfræði á einherjaklubburinn.net er þetta í fyrsta sinn sem þau Búi og Þóranna fara holu í höggi.

Meðalkylfingur þarf 12.500 tilraunir að meðaltali til þess að ná því að fara holu í höggi. Atvinnukylfingar þurfa aðeins færri tilraunir, eða um 2.500, til þess að sjá boltann detta ofaní holuna eftir upphafshöggið.

Laufléttar upplýsingar um draumahöggið í golfi.
Á hverju ári eru um 150.000 draumahögg slegin á heimsvísu. Allir kylfingar hafa látið sig dreyma um að fara holu í höggi en hverjar eru líkurnar á því að slíkt gerist?

12.500 – Meðalkylfingur þarf 12.500 tilraunir til þess að ná því að fara holu í höggi.

5.000 – Lágforgjafarkylfingur þarf um 5.000 tilraunir til þess að slá boltann ofan í holuna í teighögginu.

2.500 – Atvinnukylfingar þurfa aðeins færri tilraunir, eða um 2.500, til þess að sjá boltann detta ofaní holuna eftir upphafshöggið.

51 – Oftast allra – heimsmet: Bandaríkjamaðurinn Mancil Davis er sá kylfingur sem hefur oftast farið holu í höggi. Davis er PGA-kennari og hefur slegið draumahöggið í 51 skipti á ferlinum.

200 ára biðtími – Meðalkylfingur þarf 200 ár til þess að ná draumahögginu en þeir kylfingar sem leika 75 hringi að meðaltali á ári þurfa aðeins að bíða í 30 ár eftir að ná því að fara holu í höggi.

Þriðjudagar – Á hvaða vikudegi eru mestar líkur á því að fara holu í höggi? – Jú, það er á þriðjudögum, samkvæmt tölfræðisamantekt á heimsvísu.

Lengsta færið: Mike Crean dúndraði boltanum ofan í holuna af 472 metra færi á par 5 holu á golfvelli í Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. Hann gat reyndar stytt sér leið með því að slá yfir skóg, sem hann gerði, og niðurstaðan var fullkomin.

Ragnar Einarsson er yngsti íslenski kylfingurinn sem hefur farið holu í höggi. Hann var sex ára árið 1994 þegar hann fór holu í höggi. Arnar T. Sigþórsson er sá elsti sem hefur afrekað að fara holu í höggi af íslenskum kylfingum. Hann var 98 ára gamall árið 1985 þegar hann sló draumahöggið.