Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA fer fram fimmtudaginn 17. febrúar 2022

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn á Jaðarsbökkum fimmtudaginn 17. febrúar nk. kl. 20.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Dagskrá fundarins er skv. 8. grein laga félagsins sem finna má á heimsíðunni kfia.is.

Tillögur um lagabreytingar skulu berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 10. febrúar nk.

Stjórn Knattspyrnufélags ÍA