Guðlaug tilnefnd sem bygging ársins í alþjóðlegri keppni á vegum Archdaily

Guðlaug við Langasand er tilnefnd í kosningu um byggingu ársins 2022 hjá Archdaily – en um er að ræða alþjóðlega keppni þar sem að fjölmargar byggingar eru tilnefndar í mörgum flokkum.

Þessi keppni hefur farið fram í 12 ár og er þetta í 13. sinn sem kosningin fer fram. Um er að ræða netkosningu og er hægt að taka þátt með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Smelltu hér til að kjósa Guðlaugu.

Á næstu vikum er hægt að kjósa og í lok keppninnar verða 15 byggingar eftir í lokaúrtakinu – en alls eru 4500 byggingar sem eru tilnefndar að þessu sinni.

Guðlaug var tekin í notkun þann 8. desember árið 2018.

Guðlaug samanstendur af útsýnispalli, heitri laug og grynnri laug sem nýtur vatna úr yfirfalli efri laugarinnar. Útsýni úr lauginni er stórfenglegt, yfir Faxaflóann og til Reykjavíkur. Hæð mannvirkisins er um 6 m yfir meðal stórstreymis flóði og er gert ráð fyrir því að sjór geti flætt inn í vaðlaugina.

„Hugmyndin fyrir Guðlaugu kviknaði útfrá dældum sem myndast umhverfis steina á sandinum, þannig myndast litlar náttúrulegar „laugar“ í flæðamálinu. Þessa hugmynd tókum við svo áfram og formuðum mannvirki á þremur stöllum í sjóvarnargarðinum sem hver og einn hverfist um stakan stein líkt og á ströndinni. Efst er útsýnispallur sem vísar til skipsstafns, í miðjunni er laugin sjálf sem nýtur útsýnis út á hafið og skjóls frá pallinum fyrir ofan, neðst er svo laug þar sem sjórinn og vatnið frá lauginni fyrir ofan blandast,“ sagði Hrólfur Karl Cela arkitekt hjá Basalt arkitektum við opnun Guðlaugar.

Í ágúst árið 2017 var samningur undirritaður um byggingu Guðlaugar og hófust framkvæmdir strax samkvæmt hönnun Basalt arkitekta og Mannvits verkfræðistofu. En Hrólfur Karl Cela, Sigríður Sigþórsdóttir, Marcos Zotes og Guðjón Kjartansson hönnuðu mannvirkið.Verktaki framkvæmdarinnar var Ístak ehf. og Vélaleiga Halldórs Sig ehf. var undirverktaki þeirra. Rafþjónusta Sigurdórs og Pípulagningaþjónustan ehf. sáu um rafmagns- og vatnslagnir laugarinnar og Trésmiðjan Akur kom að því að koma upp búningaaðstöðu. Fyrst var byrjað á því að grafa í grjótgarðinn fyrir undirstöðum og þær steyptar síðan mánuði síðar. Grjótgarðurinn var í kjölfarið settur aftur upp fyrir veturinn og hóf Ístak vinnu við að forsteypa einingar mannvirkisins. Framkvæmdir hófust á ný í júní síðastliðnum og lauk þeim nú á dögunum. Síðustu vikur verið tileinkaðar undirbúning vegna opnunar og öðrum verklegum þáttum sem tengjast rekstri Guðlaugar.

Forsaga Guðlaugar

Forsaga Guðlaugar á sér rætur að rekja til ársins 2014 þegar Minningarsjóður Jóns Gunnlaugssonar útvegsbónda og Guðlaugar Gunnlaugsdóttur húsmóður frá bræðraparti á Akranesi var formlega slitið en sjóðurinn var stofnaður árið 1969. Stjórn minningarsjóðsins ákvað þar að ráðstafa samtals 14 m.kr. til uppbyggingar á heitri laug við Langasand ásamt öðrum styrkjum til samfélagsins á Akranesi að verðmæti 54 m.kr. í reiðufé og lóðum að verðmæti 66 m.kr. Tilgangur með stofnun sjóðsins var að efla mannlíf og samfélag á Akranesi og veita ungum fátækum námsmönnum á Akranesi styrki til náms sem tengdist sjávarútvegi. Með breyttum aðstæðum og atvinnuháttum á Akranesi sóttu færri um styrk úr sjóðnum en stofnendur hugðu upphaflega. Það var því einróma samþykkt í stjórn sjóðsins að leggja sjóðinn niður og ráðstafa stærstum hluta hans til málefna tengdum slysavörnum og samfélagsmálum á Akranesi. Í kjölfar styrkveitingarinnar var settur á laggirnar starfshópur skipaður af Sigurði Páli Harðarsyni sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, Elínu Sigrúnu Jónsdóttur barnabarni Gunnlaugs og Guðlaugar, Írisi Reynisdóttur þáverandi garðyrkjustjóra og Haraldi Sturlaugssyni. Hlutverk starfshópsins var að útfæra verkefnið um uppbyggingu á heitri laug á Langasandi og skilaði starfshópurinn af sér tillögu á haustmánuðum ársins 2015.