„Kátt í Brekkubæ á ný – Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“

Mögnuð samstaða þegar á reynir – skrifar Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi á fésbókarsíðu sína eftir að nemendur skólans gátu komið til baka eftir tveggja vikna heimakennslu.

Í pistli sem forsvarsmenn skólans sendu frá er samfélaginu á Akranesi þakkað fyrir að hafa brugðist við með snatri þegar skólastarfið var í uppnámi vegna óvæntra aðstæðna.

„Vegna aðstæðna þurftu nemendur og starfsmenn skólans að sinna skólastarfinu utan skólans í tæpar tvær vikur. Nú eru allir komnir til baka og því kátt í Brekkubæ. Það þarf heilt þorp til að ala upp barn segir máltækið og það á svo sannarlega við um aðstæður okkar síðustu daga. Samfélagið hér á Akranesi brást snöggt við beiðni um að hlaupa undir bagga og hýsa nemendur á meðan ekki var hægt að vera í skólanum og allir voru boðnir og búnir til að létta undir. Foreldrahópurinn stóð líka þétt við bakið á okkur og veitti mikinn stuðning á erfiðum tíma.
Við viljum færa þeim aðilum sem aðstoðuðu okkur við að útvega húsnæði fyrir kennslu víðs vegar um bæinn okkar bestu þakkir fyrir snögg viðbrögð og einstök liðlegheit.

Þeir eru:

Skátafélag Akraness

Oddfellow

Akraneskirkja

Þorpið

Slysavarnadeildin Líf/Jónsbúð

Tónlistarskólinn á Akranesi.

Vinna við lagfæringar á hluta skólans stendur ennþá yfir en verður vonandi lokið fljótlega svo hægt sé að opna aftur mötuneytið og setustofuna.